Arsenal samþykkir tilboð í Trossard - Real Madrid á eftir Mainoo
Besta Álitið: Hver kemur heim í glugganum?
Lárus Orri: Var geldur á miðjunni
Óskar Borgþórs: Draumadrátturinn minn
Venni: Frábært að geta sett hann inn á
Besta Álitið: Hvaða lið á eftir að snúa genginu við?
Besta Álitið: Hvaða lið getur veitt Víkingum keppni?
Besta Álitið: Hvaða leikmaður fer út í glugganum?
Rokkar um stöður í Noregi - „Alltaf stemning frammi“
HM Álitið: Hvaða lið dettur óvænt út í riðlinum?
Gummi Kri: Skil að þeir séu svekktir
Gaui Lýðs: Einn leikur á þeirri vegferð sem við erum á
Maggi: Geggjað að það sé Megavika núna
Gabríel Aron: Smá skref niður til þess að taka tvö upp
Megaviku Birkir þakklátur: Örugglega svona tuttugu ár síðan
Jökull: Algjörlega galið að eiga þá umræðu hér
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
banner
   þri 19. júlí 2011 22:49
Alexander Freyr Tamimi
Þórður Þórðar: Þeir áttu bara ekki séns
Þórður Þórðarson þjálfari ÍA var að vonum hæstánægður með 6-0 burst sinna manna gegn Þrótti á Valbjarnarvelli er liðin mættust í 1. deild karla í kvöld.

„Við vorum bara frábærir í 90 mínútur. Ég held að þetta sé bara einn besti leikur okkar í sumar og Þróttararnir áttu hreinlega bara ekki séns, það er svo einfalt,“ sagði Þórður við Fótbolta.net eftir leikinn.

Mikill munur var á spilamennsku liðsins í kvöld og þegar þeir rétt mörðu HK í síðustu umferð á Akranesi.

„Munurinn er bara sá að við lékum sem liðsheild í dag og létum boltann ganga hratt á milli manna. Við fórum aðeins yfir þetta eftir síðasta leik og það var að virka vel í dag. Mér fannst við byrja leikinn alveg frábærlega, mikill vilji og þetta minnti mig á þegar við spiluðum illa gegn Víkingi Ólafsvík í fyrri umferðinni og stútuðum leiknum á eftir,“ sagði Þórður.

Viðtalið við Þórð má sjá í heild sinni hér að ofan.
Slapp