Ólafur Kristjánsson var brúnaþungur eftir 4-0 tap Breiðabliks í Frostaskjólinu í kvöld. "Ég veit ekki alveg hvort ég er ósáttur við að tapa 4-0. Ég held kannski að ég prísi mig sælan að það var bara 4-0 vegna þess að KR-ingar gjörsamlega snýttu okkur í þessum leik."
KR-ingar mættu mun sterkari til leiks og Ólafur hrósaði þeim ,,Ég verð að hrósa þeim fyrir hversu mikinn kraft, metnað og vilja þeirra leikmenn sýndu."
Breiðablik hafa átt í vandræðum með ýmis atriði knattspyrnunnar undanfarið og ekki gengið sem skyldi. Ólafur dró enga dulu á það ,,Er þetta 30 mínútna viðtal," spurði Ólafur þegar hann var inntur eftir því hvað hefði farið úrskeiðis í kvöld.
,,Mér fannst hvernig menn dekkuðu, hvernig menn fóru í návígi, hvernig menn köstuðu frá sér ábyrgð í föstum leikatriðum, það var bara svo margt sem var að hjá okkur.
Breiðablik eru sem stendur í 8. sæti Pepsi-deildarinnar og eiga mikið verk fyrir höndum.
Nánar er rætt við Ólaf Kristjánsson í sjónvarpinu hér að ofan.
























