Arsenal samþykkir tilboð í Trossard - Real Madrid á eftir Mainoo
Besta Álitið: Hver kemur heim í glugganum?
Lárus Orri: Var geldur á miðjunni
Óskar Borgþórs: Draumadrátturinn minn
Venni: Frábært að geta sett hann inn á
Besta Álitið: Hvaða lið á eftir að snúa genginu við?
Besta Álitið: Hvaða lið getur veitt Víkingum keppni?
Besta Álitið: Hvaða leikmaður fer út í glugganum?
Rokkar um stöður í Noregi - „Alltaf stemning frammi“
HM Álitið: Hvaða lið dettur óvænt út í riðlinum?
Gummi Kri: Skil að þeir séu svekktir
Gaui Lýðs: Einn leikur á þeirri vegferð sem við erum á
Maggi: Geggjað að það sé Megavika núna
Gabríel Aron: Smá skref niður til þess að taka tvö upp
Megaviku Birkir þakklátur: Örugglega svona tuttugu ár síðan
Jökull: Algjörlega galið að eiga þá umræðu hér
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
   fim 28. júlí 2011 00:09
Alexander Freyr Tamimi
Árni Freyr: Höldum kannski að við séum betri en við erum
Árni Freyr í baráttunni í leiknum í kvöld.
Árni Freyr í baráttunni í leiknum í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
Árni Freyr Guðnason fyrirliði ÍR var allt annað en sáttur með spilamennsku sinna manna gegn Haukum í 1. deildinni í kvöld, en hans menn töpuðu 3-2 í Hafnarfirðinum.

„Við vorum rosalega lélegir í fyrri hálfleik og líka í seinni hálfleik. Við náðum bara ekki okkar spili og við erum ekkert sérstakir þegar við erum að dúndra honum fram. Það kom okkur mjög á óvart að við vorum ennþá inni í leiknum í hálfleik og við áttum alveg séns á að gera eitthvað í seinni hálfleik, og við jöfnum aftur, en það lá alltaf í loftinu að þeir myndu skora,“ sagði Árni við Fótbolta.net eftir leikinn.

Árni Freyr er á því að sigur Hauka hafi klárlega verið sanngjarn og jafnvel mátt vera stærri.

„Þetta var algjörlega sanngjarnt. Þetta var frekar of lítill sigur hjá þeim ef eitthvað var. Ég held bara að við höfum ekki verið að berjast og vinna þessa grunnvinnu. Við erum kannski farnir að halda að við séum betri en við erum og við vorum ekki að leggja okkur fram, við vorum bara baráttulausir og einbeitningin ekki til staðar.“

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Slapp
banner
banner