Fjolla: Fullt af liðum að kaupa útlendinga og eitthvað shit
,,Ég er mjög ánægð með að hafa skorað, það er kominn tími til. Ég var búin að klúðra nokkrum dauðafærum," sagði Fjolla Shala sem skoraði tvö mörk í 3-1 sigri Fylkis á Þór/KA í Pepsi-deild kvenna í kvöld.
,,En ég meina, það er er fullt af liðum að kaupa útlendinga og eitthvað svona shit en þær eru samt ekki að gera neitt. Við erum bara að byggja á ungum leikmönnum. Ég er sátt með liðið mitt."
Nokkrir leikmanna Fylkis voru áberandi á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum þar sem þær voru merktar Fylki á myndum sem birtust opinberlega. En var vera þeirra þar ekkert að trufla liðið?
,,Ótrúlegt en satt fór ég ekki á þjóðhátíð, en það voru sumir sem fóru. En við æfðum rosalega vel eftir þjóðhátíð svo þetta situr ekkert í okkur."
Nánar er rætt við Fjollu í sjónvarpinu að ofan.























