Arsenal samþykkir tilboð í Trossard - Real Madrid á eftir Mainoo
Besta Álitið: Hver kemur heim í glugganum?
Lárus Orri: Var geldur á miðjunni
Óskar Borgþórs: Draumadrátturinn minn
Venni: Frábært að geta sett hann inn á
Besta Álitið: Hvaða lið á eftir að snúa genginu við?
Besta Álitið: Hvaða lið getur veitt Víkingum keppni?
Besta Álitið: Hvaða leikmaður fer út í glugganum?
Rokkar um stöður í Noregi - „Alltaf stemning frammi“
HM Álitið: Hvaða lið dettur óvænt út í riðlinum?
Gummi Kri: Skil að þeir séu svekktir
Gaui Lýðs: Einn leikur á þeirri vegferð sem við erum á
Maggi: Geggjað að það sé Megavika núna
Gabríel Aron: Smá skref niður til þess að taka tvö upp
Megaviku Birkir þakklátur: Örugglega svona tuttugu ár síðan
Jökull: Algjörlega galið að eiga þá umræðu hér
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
   sun 07. ágúst 2011 22:25
Örvar Arnarsson
Ólafur Þórðarson: Auðvitað söknum við Adda
Fram og Fylkir gerðu annað markalaust sitt í sumar þegar liðin mættust í Laugardalnum í kvöld en leikur þeirra í fyrri umferð Pepsi-deildarinnar endaði einnig 0-0. "Fyrirfram má alveg segja að maður sætti sig við eitt stig á útivelli en engu að síður, miðað við hvernig leikurinn spilaðist, fannst mér við eiga að taka öll stigin í kvöld." sagði Ólafur Þórðarson, þjálfari Fylkis, eftir leikinn.

Gylfi Einarsson kom að nýju inn í lið Fylkis eftir meiðsli og við það breyttist leikur Fylkis umtalsvert. Það vantaði þó töluvert upp á að sóknarleikur Fylkis væri nógu öflugur og skapandi: "Já, ég er sammála því. Það vantaði bara aðeins upp á gæðin hjá okkur að geta skapað okkur fleiri færi."

Andrés Már Jóhannesson var á dögunum seldur frá Fylki og til Haugesund. Fylkismenn virtust sakna hans töluvert í leiknum í kvöld og virtust stundum ráðvilltir með boltann á vallarhelmingi Framara: "Auðvitað söknum við Adda, það er engin spurning. Hann var klárlega einn af okkar bestu mönnum svo hurfu ákveðin gæði með honum. Engu að síður erum við með fullt af efnilegum strákum og þeir verða að halda fókus á að bæta sig og þá kemur þetta hægt og rólega." sagði Ólafur.

Nánar er rætt við Ólaf í sjónvarpinu hér að ofan
Slapp
banner
banner