Besta Álitið: Hver kemur heim í glugganum?
Lárus Orri: Var geldur á miðjunni
Óskar Borgþórs: Draumadrátturinn minn
Besta Álitið: Hvaða lið á eftir að snúa genginu við?
Besta Álitið: Hvaða lið getur veitt Víkingum keppni?
Besta Álitið: Hvaða leikmaður fer út í glugganum?
Rokkar um stöður í Noregi - „Alltaf stemning frammi“
HM Álitið: Hvaða lið dettur óvænt út í riðlinum?
Gummi Kri: Skil að þeir séu svekktir
Gaui Lýðs: Einn leikur á þeirri vegferð sem við erum á
Maggi: Geggjað að það sé Megavika núna
Gabríel Aron: Smá skref niður til þess að taka tvö upp
Megaviku Birkir þakklátur: Örugglega svona tuttugu ár síðan
Jökull: Algjörlega galið að eiga þá umræðu hér
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
   lau 10. september 2011 16:11
Alexander Freyr Tamimi
Kvennaboltinn
Anna Björk: Maður þarf að gera þetta sem oftast
Kvennaboltinn
Anna Björk Kristjánsdóttir var að vonum hæstánægð með 5-0 sigur Stjörnunnar gegn Breiðablik í Pepsi deild kvenna. Eftir sigurinn hömpuðu Stjörnustúlkur Íslandsmeistarabikarnum og Anna Björk viðurkennir að það hafi verið gaman.

„Þetta er ekki leiðinlegt, maður þarf að gera þetta sem oftast. Við erum búin að bíða eftir þessu í smá stund og nú kom þetta loksins, það er æðislegt. Við ákváðum að koma ekkert að hálfum hug í þetta og gera þetta af alvöru. Við gerðum það svo sannarlega í dag,“ sagði Anna Björk við Fótbolta.net.

„Það var svolítið hvetjandi þegar við sáum að það var verið að setja upp sviðið í miðjum leik. Það ýtti okkur áfram og hvatti okkur og við ákváðum að sýna allt. Þetta var bara gaman. Við vorum bara að sýna að við getum þetta og við eigum þetta algerlega skilið. Við töpuðum bara einum leik og vorum að jafna stigametið í sumar, þetta er búið að vera æðislegt sumar og við eigum þetta svo sannarlega skilið.“

Viðtalið við Önnu Björk má sjá í heild sinni í myndbandinu hér að ofan.
Slapp
banner
banner