„Ég var virkilega ánægður með fyrri hálfleikinn sérstaklega. Mér fannst geisla af liðinu og við vorum að spila frábærlega vel og sköpuðum fullt af færum,“ sagði landsliðsþjálfarinn Sigurður Ragnar Eyjólfsson í samtali við Fótbolta.net eftir 3-1 sigurinn á Noregi í undankeppni EM.
Lestu um leikinn: Ísland 3 - 1 Noregur
Góður fyrri hálfleikur skóp sigurinn en íslenska liðið leiddi 3-0 í hálfleik.
„Ég vonaðist eftir jafngóðum seinni hálfleik en því miður vorum við orðnar pínu þreyttar fannst mér. Það var gott fyrir okkur að skipta inn á og fá ferska fætur.“
„Mér fannst vörnin þétt og góð hjá okkur og við gáfum fá færi á okkur. Norðmenn eru með hörkulið og sýndu aðeins í seinni hálfleik að þær eru sterkar en ég var virkilega stoltur af liðinu í dag."
„Ég átti ekki von á því að við myndum skora svona mörg mörk á þær. Þær hafa verið mjög þéttar og spilað góða vörn í sínum leikjum og ekki fengið á sig mörg mörk. Bæði áttum við frábæran leik og ég held að við höfum slegið þær útaf laginu. Við bárum enga virðingu fyrir þeim. Byrjuðum bara á hápressu og áttum frábæran fyrri hálfleik,“ sagði Sigurður Ragnar meðal annars en hægt er að horfa á allt viðtalið við hann í sjónvarpinu hér að ofan.





















