Liverpool opið fyrir því að selja Van Dijk - Tveir á óskalista Man Utd - Suzuki til Leeds?
Besta Álitið: Hver kemur heim í glugganum?
Lárus Orri: Var geldur á miðjunni
Óskar Borgþórs: Draumadrátturinn minn
Venni: Frábært að geta sett hann inn á
Besta Álitið: Hvaða lið á eftir að snúa genginu við?
Besta Álitið: Hvaða lið getur veitt Víkingum keppni?
Besta Álitið: Hvaða leikmaður fer út í glugganum?
Rokkar um stöður í Noregi - „Alltaf stemning frammi“
HM Álitið: Hvaða lið dettur óvænt út í riðlinum?
Gummi Kri: Skil að þeir séu svekktir
Gaui Lýðs: Einn leikur á þeirri vegferð sem við erum á
Maggi: Geggjað að það sé Megavika núna
Gabríel Aron: Smá skref niður til þess að taka tvö upp
Megaviku Birkir þakklátur: Örugglega svona tuttugu ár síðan
Jökull: Algjörlega galið að eiga þá umræðu hér
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
   mið 21. september 2011 10:00
Magnús Már Einarsson
Jón Daði: Allar líkur á að ég verði áfram
Efnilegasti leikmaður 1. deildar karla
Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl
,,Þetta er eitt af því sem maður stefndi að, að vekja athygli í þessari deild. Það er gott að vita að það er eitthvað efni í manni," sagði Jón Daði Böðvarsson við Fótbolta.net í gær eftir að hann var útnefndur efnilegasti leikmaður fyrstu deildar karla.

,,Ég er þannig leikmaður að ég er aldrei nógu sáttur. Ég er ágætlega sáttur með sumarið en ég hefði persónulega viljað meira. Það sýnir kannski hvað maður er gráðugur í þessu."

Jón Daði var í lykihlutverki þegar Selfyssingar tryggðu sér sæti í Pepsi-deildinni næsta sumar en hann býst við að leika áfram með liðinu.

,,Það eru allar líkur á því að ég verði áfram. Ég er ekki búinn að heyra neitt og mér líður mjög vel í þessum klúbbi. Það er ótrúlegt starf í gangi og ráðning Auðuns (Helgasonar) og Loga (Ólafssonar) var mjög góð. Þeir komu klúbbnum á flot eftir að við féllum."

Selfyssingar féllu úr Pepsi-deildinni fyrir ári síðan en Jón Daði telur að liðið sé betur í stakk búið til að standa sig vel núna.

,,Við erum með mjög góðan mannskap núna og töluvert sterkari en í fyrra. Ég hef góða trú á að við munum standa okkur vel í Pepsi-deildinni. Ef við leggjum hart að okkur á undirbúningstímabilinu þá hefur maður ekki áhyggjur."

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Slapp
banner