Bjarni Jóhannsson þjálfari Stjörnunnar var að vonum hæstánægður með 5-0 sigur sinna manna gegn Val í Pepsi deildinni í dag.
Lestu um leikinn: Stjarnan 5 - 0 Valur
„Þetta var flottur dagur í dag, mögnuð byrjun og við vorum sterkir í föstu leikatriðunum í dag. Við vorum reyndar að spila okkur líka í flott færi og ég hefði viljað sjá fleiri færi úr spileríinu, en fimmta markið var bara glæsilegt,“ sagði Bjarni við Fótbolta.net.
„Við gáfum aldrei færi á okkur. Valsararnir eru með sprækt lið, þeir eru hraðir og spýttu nú aðeins í lófana í seinni hálfleik, en fjórða markið drap þá alveg.“
Bjarni segist þó ekki vera að velta því mikið fyrir sér að Stjarnan eigi enn möguleika á Evrópusæti.
„Ég er svosum lítið að pæla í því annað en það að við þurfum náttúrulega að vinna okkar leik, og um það snýst þetta. Svo eru bara einhverjir aðrir sem verða að taka í taumana ef það á að takast.“






















