Útvarpsþátturinn - upptaka
Útvarpsþáttur Fótbolta.net er alla laugardaga á X-inu FM 97,7. Í þættinum eru mál fótboltans rædd ofan í kjölinn.
Daníel Geir Moritz, sem var á dögunum kjörinn fyndnasti maður Íslands, var gestur þáttarins. Rætt var við hann um austfirskan fótbolta og fleira.
Daníel Geir Moritz, sem var á dögunum kjörinn fyndnasti maður Íslands, var gestur þáttarins. Rætt var við hann um austfirskan fótbolta og fleira.
Þá fékk Daníel, sem heldur með Arsenal, sér sæti við enska hringborðið ásamt Magnúsi Ingvasyni, heitum stuðningsmanni Manchester City.
Einnig fóru Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson umsjónarmenn þáttarins yfir fréttir síðustu daga í íslenska fótboltanum.
Nú er hægt að hlaða niður MP3 skrá af þætti laugardagsins hér á Fótbolta.net.
Smelltu hér til að sækja MP3 skrá af þættinum.

