,,Það getur ekki verið annað en gleði," sagði Logi Ólafsson þjálfari Selfoss aðspurður um fyrstu viðbrögð eftir 1-0 sigur á KR í kvöld.
,,Við erum virkilega ánægðir með frammistöðu bæði í vörn og sókn. Þýðing leiksins var gríðarleg fyrir okkur. Við þurftum ekki bara að standa af okkur það að spila á móti einu besta liði landsins heldur að yfirvinna ákveðna pressu. Það er ekki gott að vera í neðri hluta deildarinnar og þurfa að vinna. En það gerðum við í dag á móti þessu góða liði svo við getum ekki verið annað en ánægðir."
,,Þetta er sjálfsagt einn af betri leikjum sumarsins hjá okkur og stigin kærkomin. Það var svo margt jafnvel mikilvægara en þessi stig, spilamennskan í liðinu og sjálfstraustið sem geislar af mönnum og viljinn. Það er ekki síst það sem við erum ánægðir með."
Jón Daði Böðvarsson skoraði eina mark kvöldins sem var einkar glæsilegt. Logi var spurður út í það.
,,Við skulum vona að hann hafi ætlað að gera þetta. Ef hann hefur ætlað að gefa fyrir þá er ég mjög þakklátur fyrir að það takast ekki allar fyrirgjafir."
Nánar er rætt við Loga í sjónvarpinu að ofan.
Athugasemdir























