Líkur eru á því að Alfreð Finnbogason spili í fremstu víglínu íslenska landsliðsins gegn Noregi á föstudag.
„Það er kominn tími á að vinna þessa Norðmenn. Þeir eru ekki betri en við í fótbolta," sagði Alfreð fyrir æfingu íslenska liðsins í Kaplakrikanum í dag.
Alfreð sat allan tímann á bekknum þegar Ísland vann Færeyjar í vináttulandsleik og viðurkennir að hann muni ekki vera á bekknum með glöðu geði á föstudag.
„Ég geri engar kröfur. Eina sem ég get gert er að standa mig með mínu félagsliði og ég hef gert það. Nú þarf þjálfarinn að velja þá sem hann treystir í þetta verkefni."
Viðtalið má sjá í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir























