,,Ég held að þetta sé hápunkturinn á mínum ferli að spila fyrir framan nánast fullt hús, halda hreinu og leggja Norðmenn í fyrsta leik í riðlinum. Þetta er algjört draumakvöld," sagði Hannes Þór Halldórsson markvörður Íslands eftir 2-0 sigur á Norðmönnum í kvöld.
Hannes nýtti tækifærið í byrjunarliðinu vel en fyrir leikinn var óvíst hvort hann eða Gunnleifur Gunnleifsson myndi byrja.
,,Við erum í hörkusamkeppni markmennirnir og það var 50-50 hvor myndi skila. Gulli sýndi mér mikinn stuðning og Halli líka. Við erum í þessu saman."
Norðmenn náðu að skora í síðari hálfleiknum en markið var dæmt af þar sem að leikmaður þeirra stóð fyrir Hannesi.
,,Þetta gerist hratt en þetta er væntanlega dæmt á gæann sem stendur fyrir framan mig og blokkerar að ég sjái boltann. Hann hafði mikil áhrif á leikinn og þetta er réttur dómur."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir






















