,,Það er fiðringur í maganum," sagði Edda Garðarsdóttir landsliðskona í viðtali við Fótbolta.net í dag en Ísland fær Norður-Írland í heimsókn á laugardag.
Með sigri nær íslenska liðið að gulltryggja að minnsta kosti sæti í umspili um sæti á EM.
,,Þetta er algjör úrslitaleikur. Ég vildi gjarnan komast á EM aftur, það væri mjög ljúft."
,,Við verðum að hugsa vel um liðssálina, koma sterkar og jákvæðar og fá fólkið með okkur. Þá getum við hvað sem er."
Katrín Jónsdóttir og fleiri leikmenn eru að glíma við meiðsli fyrir leikinn á laugaradag.
,,Það eru allir hressir og kátir. Þó að það séu meiðsli og reynsluboltinn og gamla konan Kata Jóns að misstíga sig þá er stemningin góð."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni þar sem Edda hvetur fólk meðal annars til að mæta á völlinn á laugardag klukkan 16:15.
Athugasemdir






















