Wilson óvænt að semja aftur - Man Utd bætir öðrum miðjumanni Forest á óskalistann - City að klára kaup - Real fylgdist með Tonali
Nýliðinn ósáttur þrátt fyrir stóra sviðið: „Við hefðum getað gert aðeins betur“
Alexandra: „Leyfðum þeim að krossa full auðveldlega"
Stigalausar og markalausar - „Auðvitað dreymir mann alltaf um eitthvað“
Fyrirliðinn sér bjarta framtíð: „Hún er á svipuðum aldri og ég þegar ég kom fyrst inn“
Fyrrum leikmaður ÍBV og landsliðsmarkvörður Englands um leikinn
Vilja Fanneyju og Guðrúnu með á eyðieyjuna
Glódís fyrir leikinn gegn Englandi: „Mætum með kassann úti“
Karólína Lea: Þurfum að passa vinkonu mína, hún er heit
Steini: Þurfum að gæta Russo vel inn í boxi
Diljá Ýr: Tek mínu hlutverki og reyni að gera það sem best
Sædís Rún: Auðvitað langar manni að spila á hærra leveli
María um fyrsta landsleikinn: Sérstaklega gaman að fá að spila á móti heimsmeisturunum
Cecilía Rán: Fannst við standa okkur ótrúlega vel
Óvænt í byrjunarliði Íslands - „Svo mikill heiður"
Steini Halldórs: Samkvæmt reglum á að stoppa leikinn
Jói Bjarna: Auðvitað finnst mér þetta erfitt og skrítið
Glódís Perla: Ef við viljum vera áfram í hæsta gæðaflokki þá verðum við að setja fjármagn í þetta
Guðrún: Komið alveg hálft ár síðan við hittumst síðast
Steini landsliðsþjálfari: Trú og hugrekki gegn heimsmeisturunum
Hlín Eiríks: Við leikmenn hefðum viljað hafa verkefni í síðasta glugga
   sun 16. september 2012 20:41
Mist Rúnarsdóttir
Þórður Þórðar: Ásættanlegt að fá stig úr lélegum leik
Mynd: Fótbolti.net - Ingunn Hallgrímsdóttir
„Mér fannst þetta bara vera lélegur leikur hjá okkur. Við vorum aldrei í takt við leikinn, sérstaklega í fyrri hálfleik en í seinni hálfleik fannst mér við hægt og bítandi komast í takt við þetta,“ sagði Þórður Þórðarsson, þjálfari ÍA, eftir 1-1 jafntefli við Val á Akranesi í kvöld. Þórður var ekki ánægður með spilamennsku sinna manna og sagði leikinn einfaldlega hafa verið lélegan.

„Það var fínt að fá stigið. Maður var farinn að örvænta eftir að við fengum þetta mark á okkur að þetta færi illa en við sættum okkur við stigið úr því sem komið var. Þetta var lélegur leikur hjá okkur og að fá stig út úr lélegum leik er alveg ásættanlegt,“ sagði Þórður.

Bæði mörk leiksins komu á lokamínútunum og aðspurður um þau svaraði Þórður:

„Guðjón Sveinsson, bakvörðurinn okkar, gerir náttúrulega hræðileg mistök sem leikmaður með 500 leiki á ekki að gera og eiga ekki að sjást. Það voru skelfileg mistök en seinna markið er náttúrulega virkilega vel afgreitt hjá Garðari,“ sagði Þórður og hélt síðan áfram að ræða um framhaldið hjá Skagaliðinu sem á ágæta möguleika á að ná í 2. sæti Pepsi-deildarinnar.

Hægt er að horfa á allt viðtalið við Þórð í sjónvarpinu hér að ofan.

Athugasemdir
banner
banner