Gunnar Guðmundsson var kynntur sem nýr þjálfari Selfoss í dag. Fréttaritari Fótbolta.net á Suðurlandi, Sebastian Sævarsson Meyer, tók Gunnar tali eftir að samningar höfðu verið undirritaðir.
Viðtalið má lesa hér að neðan og sjá í sjónvarpinu hér að ofan en beðist er velvirðingar á hljóðtruflunum.
Viðtalið má lesa hér að neðan og sjá í sjónvarpinu hér að ofan en beðist er velvirðingar á hljóðtruflunum.
Til hamingju með starfið og velkominn á Selfoss, hvernig lýst þér á þetta?
Mér lýst bara mjög vel á þetta. Ég hlakka til að takast á við starfið og hlakka til að byrja.
Er stefnan sett beint upp á næsta ári eða á að horfa á það sem markmið til lengri tíma?
Það er mikilvægt að sjá hvernig hlutirnir eru og hvar við stöndum þegar það fer að nálgast mótið. Ég tel ekki tímabært að gefa neitt út á þessum tímapunkti. Sjáum bara hvernig hlutirnir fara í vetur og svo setjum við okkur markmið.
Hvernig lýst þér á leikmannahópinn?
Það sem ég þekki til finnst mér flottur hópur og ég hlakka til að vinna með þessum strákum. Strákarnir þurfa að hafa vilja til að vinna vel og leggja hart að sér, annars gengur þetta ekki. Þetta verður spennandi.
Eigum við von á breytingum?
Það er erfitt að rýna í það núna. Einhverjir hafa gefið það út að þeir eru að hugsa sér til hreyfings og við verðum svo bara að sjá hvernig við fyllum þeirra skörð eða vinnum úr því. Þetta liggur í raun ekki alveg ljóst fyrir.
Hverja telurðu líkurnar á því að Jón Daði Böðvarsson sem valinn var efnilegastur verði áfram?
Ef hann verður áfram þá fagna ég því enda frábær leikmaður. Ég hef samt ekkert svakalega háar væntingar um að svo verði.
Hvað með erlendu leikmennina?
Einhverjir þeirra hafa gefið það út að þeir vilji vera áfram á meðan aðrir segjast vera farnir. Við verðum bara að sjá hvernig það þróast.
Hvaða leikstíl hyggstu nota?
Það veltur á mannskapnum en ég hef alltaf byggt upp á sterkum og góðum varnarleik. En við erum í þeirri stöðu að við þurfum líka að sækja svo þetta verður blanda af því að verjast vel og sækja svo þegar það á við.
Hver verður aðstoðarþjálfari?
Það er ekki ákveðið en ég hef ákveðnar hugmyndir varðandi það. Það verður bara kynnt þegar þar að kemur.
Verðurðu áfram með U17 landsliðið?
Nei, minn samningur rennur út um áramótin. Ég klára haustið með U17. Ég hef átt fjögur góð ár með U17 og átt gott samband við Knattspyrnusambandið. Þetta hefur verið frábær tími svo maður kveður með smá söknuði. Það er bara kominn tími á breytingarnar og ég tel það ekki fara saman að vera bæði með U17 og í þessu verkefni. Það tekur bara of mikla orku. Ég vil einbeita mér að þessu núna og gera það vel.
Athugasemdir






















