banner
   þri 02. maí 2017 11:00
Magnús Már Einarsson
Einar Orri er með Bödda löpp í Draumaliðinu sínu
Einar Orri Einarsson.
Einar Orri Einarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Einar Orri Einarsson, leikmaður Keflavíkur, hefur tjáð sig á Twitter eftir viðtal við Böðvar Böðvarsson leikmann FH á Fótbolta.net í dag.

Í tengslum við leik FH og ÍA á sunnudaginn sagði Einar Orri á Twitter:„ Böddi er dirty player. Gæti auðveldlega verið kominn með rautt."

Böðvar Hann rak löppina í höfuð Þórðar Þorsteins Þórðarsonar þegar hann lá á vellinum á 40. mínútu í leiknum og í viðtali við Fótbolta.net í dag sagðist hann sjá eftir atvikinu. Böddi tjáði sig einnig um Twitter færslu Einars Orra.

„Ég fékk smá í magann og fór að skoða þetta. Ég sá tvít frá Einari Orra og þá ákvað ég að hlæja. Þetta er eini maðurinn sem hefur gefið mér líflátshótun, kyrkt mig og keyrt mig upp við vegg við búningsklefana, allt á sömu tuttugu mínútunum. Ég held að hann ætti aðeins að slaka á," sagði Böddi fyrr í dag.

Einar Orri og Böðvar elduðu grátt silfur saman í leik árið 2014.

Einar hefur nú svarað ummælum Böðvars úr viðtalinu og meðal annars uppljóstrað að hann er með Böðvar í liði sínu í Draumaliðsdeild Eyjabita.

„Þó ég tali um bödda sem dirty leikmann þá er ég ekkert að segja að ég sé kórdrengur. Hann er flottur peyji enda i draumaliðinu mínu," sagði Einar Orri á Twitter.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner