Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 05. september 2019 10:37
Magnús Már Einarsson
Fimm skiptingar í leikjum hjá U21
Arnar Þór Viðarsson þjálfari U21 getur gert fleiri skiptingar í leikjum en forverar hans gátu gert.
Arnar Þór Viðarsson þjálfari U21 getur gert fleiri skiptingar í leikjum en forverar hans gátu gert.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Reglum hefur verið breytt í undankeppni EM hjá U21 landsliðum en nú eru fimm skiptingar leyfilegar hjá hvoru liði í leikjum.

Til að forðast of mörg stopp á leikjum þá má hvort liðið einungis stöðva leikinn þrisvar í síðari hálfleik til að skipta. Taka þarf tvöfaldar skiptingar til að ná að nýta allar fimm skiptingarnar.

Önnur breyting hjá U21 liðum er sú að nú mega 20 leikmenn vera í leikmannahóp en ekki 18 eins og áður.

Arnar Þór Viðarsson, þjálfari U21 landsliðs Íslands, valdi 26 manna æfingahóp fyrir komandi leiki gegn Lúxemborg og Armeníu en sá hópur var minnkaður niður í 20 leikmenn í gær.

Ísland mætir Lúxemborg á morgun og Armeníu á mánudag. Báðir leikirnir fara fram á Víkingsvelli og hefjast kl. 17:00.

Smelltu hér til að kaupa miða á leikinn á morgun

HÓPURINN:
Elías Rafn Ólafsson | Aarhus Fremad | 2 leikir
Patrik Sigurður Gunnarsson | Brentford | 2 leikir

Alfons Sampsted | Breiðablik | 21 leikur, 1 mark
Jón Dagur Þorsteinsson | AGF | 14 leikir, 3 mörk
Mikael Neville Anderson | FC Midtjylland | 10 leikir
Ari Leifsson | Fylkir | 9 leikir
Alex Þór Hauksson | Stjarnan | 9 leikir, 1 mark
Hörður Ingi Gunnarsson | ÍA | 8 leikir
Torfi Tímoteus Gunnarsson | KA | 8 leikir
Willum Þór Willumsson | BATE Borisov | 8 leikir
Daníel Hafsteinsson | Helsingborgs IF | 7 leikir
Stefán Teitur Þórðarson | ÍA | 7 leikir, 1 mark
Kolbeinn Birgir Finnsson | Dortmund | 6 leikir
Sveinn Aron Guðjohnsen | Spezia | 6 leikir, 1 mark
Guðmundur Andri Tryggvason | Víkingur R. | 5 leikir
Jónatan Ingi Jónsson | FH | 5 leikir
Brynjólfur Darri Willumsson | Breiðablik | 3 leikir
Ísak Óli Ólafsson | Keflavík | 1 leikur
Kolbeinn Þórðarson | Lommel | 1 leikur
Þórir Jóhann Helgason | FH | 1 leikur
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner