Hólmar Örn Eyjólfsson lék allan leikinn í vörn West Ham þegar að liðið sigraði Thurrock 3-0 í æfingaleik í gær en frammistaða hans þótti góð.
West Ham stillti upp varaliði í leiknum en liðið var skipað leikmönnum sem fóru ekki í æfingaferð til Bandaríkjanna á dögunum.
Hólmar Örn átti að fara í þá ferð en var ekki í leikmannahópnum vegna meiðsla.
Matthew Upson lék í vörninni við hliðina á Hólmari í gær en þetta var fyrsti leikur hans á undirbúningstímabilinu.
Framhejrinn ungi Freddie Sears skoraði eitt mark fyrir West Ham, eitt markanna var sjálfsmark og Zavon Hines skoraði eitt mark úr vítaspyrnu.
Athugasemdir