Guðni Bergsson hélt upp á 38 ára afmælisdag sinn í gær og á fékk á þeim merka degi heimsókn frá forráðamönnum Fótbolta.net. Þar var honum var afhentur undirskriftarlisti þar sem lesendur Fótbolta.net skora á hann að halda áfram að leika með íslenska landsliðinu í þeim þremur leikjum sem liðið á eftir í undankeppni Evrópumótsins í knattspyrnu 2004.
![]() |
Samtals skrifuðu 2234 undir áskorunina sem vakti mikla fjölmiðlaathygli hér á landi og voru fulltrúar síðunnar mjög uppteknir síðustu vikur söfnunarinnar í viðtölum hjá ljósvaka og prentmiðlum.
Listinn var afhentur honum í formi þriggja bóka í A4 formi. Samtals 316 blaðsíður sem innihéldu nöfn, kennitölur og texta til Guðna en textinn gæti einmitt orðið það sem fengi Guðna til að skipta um skoðun.
![]() |
Á myndunum má annarsvegar sjá Guðna taka við listanum úr höndum Hafliða Breiðfjörð ritstjóra Fótbolta.net og á hinni myndinni er Guðni búinn að sökkva sér í lesturinn.
Hér að neðan má sjá eina vísu sem prýddi forsíðu einnar bókarinnar.
Líkt og örn með langar klær
leikur vörn hann Guðni.
Í spyrnutörn hann fauta flær
flestum börnum er hann kær.
Í þér, kappi, kraumar blóð
kræfi lappatryllir.
Upp þig klappar íslensk þjóð
sem elskar happ þitt, kraft og móð.
Orgar grættur almúginn,
ekki hætta Guðni!
Ég vild'þú mættir vinurinn
þá væri bættur harmurinn.





