78.þáttur útvarpsþáttarins: Guðjón Baldvins, Gummi Ben o.fl
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net sem var á X-inu 977 milli 12:00 og 14:00 í dag er nú kominn á netið þar sem hægt er að hlaða niður mp3 skrá af honum.
Guðjón Baldvinsson, framherji KR, kom í heimsókn en Vesturbæingar eru komnir á skrið í Pepsi-deildinni eftir erfiða byrjun. Næsti leikur KR er gegn Val á mánudaginn.
Guðmundur Benediktsson var á línunni og fór yfir gang mála í ensku úrvalsdeildinni þar sem önnur umferð fer fram um helgina. Þá fór Kristján Jónsson blaðamaður á Morgunblaðinu fer yfir leik kvennalandsliðsins gegn Frökkum ásamt því að ræða um stórleik 2. deildarinnar í dag þar sem BÍ/Bolungarvík og Höttur mættust en Kristján er borinn og barnfæddur Bolvíkingur.
Garðar Gunnar Ásgeirsson, sérfræðingur þáttarins í neðri deildunum, verður einnig á línunni og fer yfir 1. deildina en þar er lokaspretturinn í fullum gangi.
Nú er hægt að hlaða niður MP3 skrá af þætti laugardagsins hér á Fótbolta.net.
Guðjón Baldvinsson (KR), Guðmundur Benediktsson (Stöð 2 Sport), Kristján Jónsson (Morgunblaðið), Garðar Gunnar Ásgeirsson (sérðfræðingur um 1. deildina)
Smelltu hér til að sækja MP3 skrá af þættinum.



