Ólafur Jóhannesson þjálfari Valsara var að vonum sáttur eftir 5-0 sigur á andlausum Fylkismönnum í 8 liða úrslitum Borgunarbikarsins í dag.
"Við vorum ákveðnir í að koma ákveðnir til leiks. Þessi leikur fór fram á þannig tíma að það var ekki mikill áhugi fyrir honum og auðvelt að dett í einhvern letipakka. Við ákváðum að gera það ekki, komum grimmir til leiks og náðum yfirhöndinni mjög fljótlega".

Óli Jó stendur enn fast í fæturnar og er ekkert að hugsa út í úrslitaleikinn á Laugardalsvelli strax.
"Það er bara þannig í bikarkeppninni að þú hugsar bara um næsta leik. Ef þú ætlar að fara að hugsa eitthvað lengra þá lendirðu í veseni."
Næsta verkefni Valsara er að fara til Danmerkur og spila við Bröndby, hvernig leggur Óli það verkefni upp.
"Við ætluðum okkur að fara til Danmerkur og eiga séns, en ég held nú að svo sé ekki. Í staðinn ætlum við að einbeita okkur að stilla okkur inn á að hafa gaman af því að spila leikinn og á þau verkefni sem við erum í hér heima."
Nánar er rætt við Óla í viðtalinu sem fylgir.
Athugasemdir