,,Við sýndum góðan karakter með því að koma til baka eftir að hafa fengið mark á okkur," sagði James Hurst leikmaður Vals við Fótbolta.net eftir 2-1 sigur Vals á Fylki í kvöld.
Hurst gekk til liðs við Val á dögunum og hann er ánægður með að vera kominn til Íslands.
,,Íslenskur umboðsmaður sem ég þekki talaði við mig og ég talaði við Magga þjálfara. Við gengum frá þessu á laugardag. Ég vil spila eins marga leiki og ég get og sjá hvað gerist."
Hurst sló í gegn með ÍBV árið 2010 og hann ræddi einnig við Eyjamenn á dögunum.
,,Já, ég talaði við Hermann (Hreiðarsson) en við gátum ekki gengið frá því. Því miður gekk það ekki upp en ég er ánægður með að ganga í raðir Vals."
Hurst kann vel við sig í kuldanum á Íslandi. ,,Það er kaldara á Englandi svo þetta er eins og sumarfrí fyrir mig," sagði Hurst léttur í bragði.
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir























