„Þetta voru frábær þrjú stig. Við þurftum að vinna fyrir þessum stigum. Þetta var erfitt í dag og kannski erfiðara en við héldum," sagði Gylfi Þór Sigurðsson eftir ævintýralegan 3-2 sigur Íslands á Finnlandi í kvöld.
Lestu um leikinn: Ísland 3 - 2 Finnland
Sigurmarkið kom eftir darraðadans undir lokin en Gylfi telur að boltinn hafi farið inn.
„Ég sá þetta bara inni. Mér fannst boltinn detta til markmannsins og hvort að hann hafi borið boltann yfir línuna eða hvað. Auðvitað hljóp maður í burtu og sagði við dómarann að þetta hefði verið mark."
Gylfi Þór Sigurðsson skaut í slána úr vítaspyrnu en það er í fyrsta skipti sem hann klúðrar víti síðan árið 2010.
„Ég held að það hafi síðast verið á móti Sheffield United í Championship deildinni með Reading. Það eru sex ár síðan," sagði Gylfi.
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir






















