Liverpool gerir lokatilboð í Wirtz - Real Madrid reynir að stela Zubimendi - Grealish til Everton?
   mán 09. júní 2025 21:25
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjudeildin: Jafntefli í Keflavík og Laugardal
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tveimur síðustu leikjum kvöldsins í Lengjudeild karla lauk báðum með jafntefli, þar sem Keflavík og Þróttur R. áttu heimaleiki.

Lestu um leikinn: Keflavík 1 -  1 Fylkir

Keflavík 1 - 1 Fylkir
1-0 Muhamed Alghoul ('4)
1-1 Theodór Ingi Óskarsson ('87)

Keflvíkingar tóku á móti Fylki og náðu forystunni strax á fjórðu mínútu, þegar Muhamed Alghoul skoraði beint úr aukaspyrnu rétt fyrir utan teig. Muhamed spyrnti boltanum í varnarvegginn þar sem hann breytti um stefnu og lak í netið.

Fylkismenn áttu svo skalla í slá og vildu Keflvíkingar fá dæmda vítaspyrnu en staðan var 1-0 í leikhlé. Fyrri hálfleikurinn var nokkuð jafn en gestirnir úr Árbænum fengu betri færi.

Liðin skiptust á að sækja í skemmtilegum síðari hálfleik en boltinn rataði ekki í netið fyrr en á lokamínútunum, þegar Theodór Ingi Óskarsson potaði honum inn eftir góða fyrirgjöf frá hægri kanti og jafnaði þannig metin.

Fylkismenn reyndu að stela sigrinum en tókst ekki að skora framhjá Sindra Kristni Ólafssyni í markinu svo lokatölur urðu 1-1.

Fylkir er í fallbaráttu með 6 stig eftir 7 umferðir, fjórum stigum fyrir neðan Keflavík sem er um miðja deild og með leik til góða.

Þróttur R. 2 - 2 Njarðvík
1-0 Liam Daði Jeffs ('37)
1-1 Oumar Diouck ('47)
2-1 Kári Kristjánsson ('60)
2-2 Tómas Bjarki Jónsson ('83)

Lestu um leikinn: Þróttur 2 - 2 Njarðvík

Njarðvíkingar byrjuðu betur í Laugardalnum og klúðruðu tveimur dauðafærum áður en heimamenn komust inn í leikinn og tóku forystuna. Liam Daði Jeffs var vel staðsettur í vítateignum til að taka á móti fyrirgjöf frá hægri kanti og klára með marki. Þróttarar spiluðu boltanum laglega upp hægri kantinn en gestirnir frá Njarðvík vildu fá dæmda rangstöðu.

Þróttur leiddi 0-1 í leikhlé en gestirnir úr Njarðvík jöfnuðu strax í upphafi síðari hálfleiks. Njarðvíkingar komust upp hægri vænginn og gáfu boltann fyrir á Oumar Diouck sem kom boltanum í netið.

Njarðvíkingar þjörmuðu að Þrótturum í leit að öðru marki en þess í stað skoruðu heimamenn aftur gegn gangi leiksins. Í þetta sinn skoraði Kári Kristjánsson laglegt mark beint úr aukaspyrnu þar sem hann þrumaði boltanum undir vegginn og í bláhornið þar sem Aron Snær Friðriksson kom engum vörnum við.

Leikurinn róaðist talsvert niður eftir þetta og komust heimamenn nálægt því að tvöfalda forystuna á lokakaflanum, en Aron Snær varði meistaralega til að halda sínum mönnum inni í leiknum. Það átti heldur betur eftir að borga sig því Tómas Bjarki Jónsson jafnaði metin skömmu síðar. Tómas Bjarki skoraði eftir að Þrótturum mistókst að hreinsa fyrirgjöf nægilega langt frá vítateignum.

Lokatölur urðu 2-2 eftir skemmtilega viðureign í Laugardalnum.

Þróttur er í 3.-5. sæti Lengjudeildarinnar eftir jafnteflið, tveimur stigum á eftir Njarðvíkingum sem sitja í öðru sæti með 13 stig eftir 7 umferðir.
Lengjudeild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    ÍR 7 4 3 0 11 - 4 +7 15
2.    Njarðvík 7 3 4 0 17 - 7 +10 13
3.    HK 7 3 2 2 12 - 8 +4 11
4.    Þór 7 3 2 2 17 - 14 +3 11
5.    Þróttur R. 7 3 2 2 13 - 11 +2 11
6.    Keflavík 6 3 1 2 14 - 8 +6 10
7.    Grindavík 6 3 1 2 19 - 14 +5 10
8.    Völsungur 7 3 0 4 10 - 16 -6 9
9.    Leiknir R. 7 2 1 4 9 - 20 -11 7
10.    Fylkir 7 1 3 3 8 - 11 -3 6
11.    Selfoss 7 2 0 5 6 - 15 -9 6
12.    Fjölnir 7 0 3 4 7 - 15 -8 3
Athugasemdir
banner
banner