Uriah Rennie er látinn, 65 ára að aldri. Hann var fyrsti svarti dómarinn til að starfa í ensku úrvalsdeildinni. Rennie dæmdi yfir 300 leiki í deildinni milli 1997 og 2008.
Fyrr á árinu sagði hann frá því hvernig hann hefði skyndilega lamast frá mjöðm og niður og væri bundinn við hjólastól.
Fyrr á árinu sagði hann frá því hvernig hann hefði skyndilega lamast frá mjöðm og niður og væri bundinn við hjólastól.
Hann skrifaði sig í sögubækurnar árið 1997 þegar hann dæmdi leik á milli Derby County og Wimbledon.
„Uriah vann sér sess sem fyrsti svarti dómari ensku úrvalsdeildarinnar og dæmdi yfir 300 deildarleiki. Hann braut niður hindranir, mótaði fótboltasamfélagið okkar og veitti komandi kynslóðum innblástur," segir í yfirlýsingu frá fótboltasambandi Sheffield og Hallamshire.
Rennie fæddist á Jamaíku en flutti sem barn til Sheffield þar sem hann ólst upp. Hann var virkur í samfélagsmálum og helgaði líf sitt baráttunni fyrir auknum jöfnuði og mátti íþrótta. Rennie hafði meistaragráðu í viðskiptafræði og lögfræði og var veitt heiðursdoktorsgráða frá háskólanum í Sheffield í nóvember 2023.
Athugasemdir