Það var kuldalegt í Prag í morgun þegar íslenska kvennalandsliðið æfði á æfingasvæði tékkneska fótboltasambandsins. Ísland leikur mikilvægan leik gegn Tékklandi í undankeppni HM á þriðjudaginn.
Cecilía Rán Rúnarsdóttir markvörður spjallaði við Fótbolta.net fyrir æfinguna. Hún stóð í markinu gegn Hvíta-Rússlandi, býst hún við því að vera í markinu gegn Tékkum líka?
Cecilía Rán Rúnarsdóttir markvörður spjallaði við Fótbolta.net fyrir æfinguna. Hún stóð í markinu gegn Hvíta-Rússlandi, býst hún við því að vera í markinu gegn Tékkum líka?
„Auðvitað vonast ég eftir því að spila en Steini ræður því. Sama hvort ég, Sandra eða Telma spili þá virði ég hans ákvörðun. Það eru þrír frábærir markverðir í þessum hóp og svo eru aðrir sem eru utan hópsins. Maður er bara þakklátur fyrir að vera hluti af þessum hóp," segir Cecilía sem er 18 ára gömul og spilar fyrir Bayern München.
Það er mikil samkeppni um markvarðarstöðuna hjá landsliðinu en auk Cecilíu eru þær Sandra Sigurðardóttir og Telma Ívarsdóttir í hópnum.
„Ég var þakklát fyrir tækifærið og fannst geggjað að fá að spila," segir Cecilía um að hafa fengið leikinn gegn Hvíta-Rússlandi.
Sjáðu viðtalið í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.























