Grealish til Þýskalands - Kepa til Arsenal - Bayern með tvö skotmörk - Semenyo til Spurs eða Man Utd
   þri 10. júní 2025 10:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ranieri hafnar ítalska sambandinu
Mynd: EPA
Claudio Ranieri var ofarlega á blaði ítalska sambandsins sem er þessa stundina að leita að eftirmanni Luciano Spalletti sem var látinn fara eftir 3-0 tap Ítalíu gegn Noregi á dögunum.

Ranieri tók þjálfaramöppuna af hillunni í vetur og stýrði Roma alla leið í Evrópusæti eftir afleita byrjun á tímabilinu.

Hann mun ekki taka við landsliðsþjálfarastarfinu. Hann sagði takk en nei takk við sambandinu, þakkaði fyrir tækifærið.

Sky á Ítalíu segir að Stefano Pioli sé næsta skotmark sambandsins.
Athugasemdir
banner
banner