Magnús Már Einarsson þjálfari Aftureldingar var svekktur eftir tap gegn Kórdrengjum í breiðholti í kvöld.
Þetta hafði hann að segja um leikinn.
„Svekktur að sjálfsögðu. Þetta sigurmark er náttúrulega bara þess eðlis að það átti aldrei að standa, markmaðurinn er keyrður niður og klárt brot í teignum og það skilur á milli í dag. Auðvitað hefðum við getað gert betur í mörgum atvikum og við verðum að fara yfir það að sjálfsögðu, hvað við getum gert betur en ég vona og veit að dómaranum standi ekki á sama því þetta er risatórt atvik þarna sem kostar okkur mögulega stig."

Lestu um leikinn: Kórdrengir 2 - 1 Afturelding
Afturelding átti erfitt með að skapa sér góð færi í leiknum og þetta hafði Magnús að segja um það.
„ Já, ég meina Kórdrengir eru öflugir varnarlega og við vissum það, þeir eru mjög þéttir. Eftir að við jöfnum 1-1 þá höldum við leiknum ágætlega jöfnum og staðan 1-1 er allt önnur staða en 2-1 fyrir þeim því þá geta þeir varist ennþá þétta og síðan er þetta gríðarlega sárt þessi hornspyrna þar sem Tanis kýlir bara boltann í burtu og hann fær bara mann í andlitið á fleygiferð og það er klárt brot ég held að það sjái það allir á vellinum nema þessir þrír í gulu skyrtunum."
Þegar spurður út í hvað hann og Davið voru að ræða eftir leik hafði Magnús þetta að segja.
„Nei ég meina bara vorum að fara yfir þetta atvik og hann var að benda mér á eitthvað annað atvik og það er bara eins og gengur og gerist það var svo sem ekki neitt annað"
Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.