Tottenham og Newcastle hafa áhuga á Grealish - Newcastle bjartsýnt á að fá Guehi - Elanga í læknisskoðun
Einar Guðna þurfti ekki að hugsa málið - „Algjört draumastarf"
Halli: Er ekkert í þessu til að hefna fyrir eitt né neitt
Halli Hróðmars: Orðið ansi þungt leik eftir leik
Úlfur Ágúst: Ég reyndi og sem betur fer fór hann inn
Jökull: Við vorum líklegri og sköpuðum betri færi
Heimir Guðjóns: Vítið sem Stjarnan fékk var rangur dómur
„Ekki búin að því og ég veit ekki hvort maður muni gera það"
Svaf ekki mikið - „Þurfum að nota þetta sem spark í rassinn"
Sár, svekkt og leið - „Ég er ekki sú ferskasta núna"
„Þetta er ekki upplifun sem ég hef fengið áður"
Steini: Ég er með samning áfram
Guðrún: Mikið af knúsum og ekki mikið af orðum
Cecilía: Leiðinlegt að hafa ekki gert meira fyrir þau
Karólína Lea: Það er langt síðan ég hef grenjað svona
Magnað viðtal við Glódísi - „Mun aldrei fyrirgefa mér það"
Ingibjörg meyr: Við ætlum að fokking vinna Noreg
Dagný: Ég hefði viljað ná að brjóta
Haddi: Ég skil ekki af hverju allir efast um Viðar
Ívar Örn: Það fer okkur mjög vel að spila hér í Laugardalnum
Grímsi: Vonandi er stíflan brostin sem ég er búinn að vera að glíma við
   fös 10. september 2021 23:25
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Hlín: Forréttindi að fá að spila svona leik
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fjölnir tapaði 1-3 gegn Fjarðabyggð/Hetti/Leikni í úrslitakeppni 2. deildar kvenna í kvöld. Hlín Heiðarsdóttir fyrirliði liðsins var svekkt með úrslitin en sátt með að ná sæti í Lengjudeildinni á næstu leiktíð.

„Þetta er auðvitað svekkjandi en við erum samt sáttar með 2. sætið. Þetta var geggjaður leikur og forréttindi að fá að spila svona leik."

Liðið náði markmiðinu sínu sem var að komast í Lengjudeildina á næstu leiktíð.

„Það var markmiðið okkar. Við getum ekki verið ósáttar með það."

Hlín er gríðarlega ánægð með þjálfarateymið og telur að innkoma þeirra í liðið hafi skilað liðinu sæti í Lengjudeildinni.

„Við fengum geggjaða þjálfara, Þeir byggðu upp sjálfstraust og það virkaði. Ég held að það sé stór lykill í þessu"

Hlín er bjartsýn fyrir átökin í Lengjudeildinni.

„Við munum halda okkur í deildinni og vonandi fáum við styrkingu en við erum geggjað lið."
Athugasemdir
banner
banner