Sviss U21 0 - 0 Ísland U21
Lestu um leikinn
Lestu um leikinn
Ísland heimsótti Sviss í undankeppni EM U21 liða í kvöld. Benoný Breki Andrésson fékk frábært tækifæri eftir skelfilegt innkast frá Sviss. Hann komst einn á móti markmanni en lyfti boltanum framhjá markinu.
Sviss fékk dauðafæri þegar Roggerio Nyakossi var aleinn á fjærstönginni en skallaði boltann yfir markið.
Hlynur Freyr Karlsson átti frábæra aukaspyrnu eftir klukkutíma leik en Silas Huber, markvörður Sviss, varði frábærlega frá honum. Lúkas Petersson lenti í vandræðum stuttu síðar. Hann átti slaka sendingu sem fór beint á Junior Zé en Lúkas náði að loka á hann.
Fleira markvert gerðist ekki og því var sterkt stig staðreynd eftir erfiða byrjun í fyrstu tveimur leikjunum. Ísland er með tvö stig í 4. sæti riðilsins eftir þrjár umferðir en Sviss er með fjögur stig eftir tvær umferðir.
Landslið karla - U21 - Undankeppni EM
| Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1. Færeyjar | 5 | 3 | 0 | 2 | 6 - 11 | -5 | 9 |
| 2. Ísland | 5 | 2 | 2 | 1 | 7 - 5 | +2 | 8 |
| 3. Sviss | 3 | 2 | 1 | 0 | 5 - 1 | +4 | 7 |
| 4. Frakkland | 2 | 2 | 0 | 0 | 12 - 1 | +11 | 6 |
| 5. Eistland | 5 | 0 | 2 | 3 | 5 - 13 | -8 | 2 |
| 6. Lúxemborg | 4 | 0 | 1 | 3 | 4 - 8 | -4 | 1 |
Athugasemdir



