banner
   fim 30. október 2025 22:32
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Kristian áfram í hollenska bikarnum eftir endurkomusigur
Mynd: EPA
Kristian Nökkvi Hlynsson var í byrjunarliði Twente þegar liðið mætti Raalte, sem spilar í 4. deild, í hollenska bikarnum í kvöld.

Twente lenti undir en jafnaði metin áður en flautað var til hálfleiks.

Staðan var orðin 3-1 Twente í vil eftir klukkutíma leik. Kristian Nökkvi var tekinn af velli eftir þriðja mark liðsins.

Fjórða markið kom undir lok leiksins og 4-1 sigur staðreynd. Twente er komið áfram í fjórðu umferð bikarsins.
Athugasemdir