Avni Pepa, fyrirliði ÍBV, fékk rauða spjaldið um miðbik síðari hálfleiks í 3-1 sigri á Leikni R. í Lengjubikarnum í dag.
Avni var pirraður þegar hann fékk á sig aukaspyrnu og sparkaði í boltann. Boltinn fór beint í Ívar Orra Kristjánsson dómara og Avni fékk rauða spjaldið.
„Ég reyndi ekki að hitta hann en þetta var ekki gott hjá mér. Ég þarf að taka þessu og læra af þessu," sagði Avni við Fótbolta.net eftir leikinn í dag.

ÍBV var 2-1 yfir þegar Avni fékk rautt en Eyjamenn enduðu á að vinna leikinn 3-1.
Avni er að leika sitt þriðja tímabil með ÍBV. Undanfarin tvö ár hafa Eyjamenn verið í fallbaráttu en Avni er bjartsýnn á að svo verði ekki í ár.
„Ég held að við séum með betra lið í ár. Ég held að við munum gera betur í ár heldur en í fyrra," sagði Avni.
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir