banner
   lau 11. mars 2023 13:00
Aksentije Milisic
Í leikmannahópnum gegn Liverpool eftir að hafa sigrast á krabbameini
Mynd: Getty Images

David Brooks, leikmaður Bournemouth, er í leikmannahópi liðsins sem spilar nú gegn Liverpool í ensku úrvalsdeildinni en þetta er í fyrsta skiptið sem hann er í hópnum í 525 daga.


Brooks greindist árið 2021 með Hodgkins eitilfrumukrabbamein á öðru stigi. Velski landsliðsmaðurinn fór í kjölfarið í krabbameinsmeiðferð en tilkynnti í maí í fyrra að hann væri laus við meinið.

Það var í október mánuði árið 2021 sem hann var síðasti í leikmannahópi liðsins og því frábærar fréttir fyrir hann og Bournemouth að kappinn sé kominn af stað.

Þessi 25 ára gamli leikmaður hefur spilað leiki fyrir U21 lið Bournemouth á þessari leiktíð en hann hefur spilað 39 úrvalsdeildarleiki fyrir félagið á sínum ferli og skorað átta mörk.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner