Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   fim 14. nóvember 2019 16:00
Magnús Már Einarsson
Engar skallaæfingar hjá 12 ára og yngri hjá Breiðabliki
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Breiðablik hefur gefið út að engin áhersla verði lögð á skallaæfingar hjá leikmönnum 12 ára og yngri hjá félaginu.

Mikil umræða hefur verið í gangi um höfuðhögg og afleiðingar þeirra sem og skallabolta. Í Bandaríkjunum eru ekki skallaæfingar fyrir 12 ára og yngri og Breiðablik hefur nú ákveðið að fara sömu leið.

„Lítil áhersla hefur verið á sköllun hjá Breiðabliki undanfarin ár en nú hefur þetta skref verið stigið til að taka af allan vafa fyrir börn og ungmenni sem æfa hjá Breiðablik," segir meðal annars á heimasíðu Breiðabliks.

Af heimasíðu Breiðabliks
Ágætu foreldrar og forráðamenn

Mikil umræða hefur verið um höfuðhögg og afleiðingar þeirra í knattspyrnuhreyfingunni að undanförnu. Haldin hafa verið fræðsluerindi og gefin út fræðslumyndbönd af hálfu KSÍ, sjá: https://www.ksi.is/fraedsla/heilbrigdismal/ekki-harka-af-ther-hofudhogg/

Þjálfarar Breiðabliks hafa kynnt sér fræðsluefnið og munu taka mið af því ef upp koma atvik.

Einnig benda nýjustu rannsóknir til þess að skalla bolta sé ekki hættulaust fyrir börn.

Breiðablik mun ekki leggja neina áherslu á skallaæfingar hjá leikmönnum yngri en 12 ára líkt og gert hefur verið í Bandaríkjunum um nokkurt skeið. Lítil áhersla hefur verið á sköllun hjá Breiðabliki undanfarin ár en nú hefur þetta skref verið stigið til að taka af allan vafa fyrir börn og ungmenni sem æfa hjá Breiðablik.

Fylgst verður áfram með þróun þessara mála og ákvarðanir teknar út frá henni.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner