Það var ánægður og sáttur þjálfari Valskvenna sem mætti í viðtal til Fótbolta.net að loknum 0-3 útisigri Vals á Grindavík í kvöld.
Lestu nánar um leikinn hér
Lestu nánar um leikinn hér
Lestu um leikinn: Grindavík 0 - 3 Valur
„Mér fannst þetta í fínu lagi. Við náðum að setja tvö mörk snemma í leiknum í fyrsta grasleiknum“
Grindavíkurkonur voru heilt yfir nokkuð skipulagðar í varnarleik sínum og héldu náðu Valskonur lítið að opna vörn þeirra í leiknum.
„Þær voru mjög vel skipulagðar til baka og erfitt að brjóta þær niður að mörgu leyti en mér fannst við klára leikinn vel.“
Valur tapaði síðasta leik gegn Stjörnunni og var eflaust kærkomið að koma til baka eftir það.
„Já það var sterkt að koma til baka aftur, leikmenn lögðu sig fram og gerðu þetta vel“
Athugasemdir