Tveir leikmenn Bournemouth undir smásjá Man Utd - Bayern vill Gordon frá Newcastle - Villa sýnir Trafford áhuga
Glódís eftir sögulegan leik: Veit það nú ekki alveg
Karólína Lea: Ég er eins og einhver stolt mamma þegar ég sé hana
Linda Líf eftir fraumraunina: Geggjað að fyrsti landsleikurinn hafi verið sigur
Cecilía: Ég er vön þessu stundum úti
Thelma Karen: Vantaði helminginn af vinkonunum
Alexandra: Alltaf gaman í þau fáu skipti sem það gerist
Steini vonsvikinn: Þetta er að gerast annars staðar
Sandra María: Hún getur allt sem hún vill
Sterkastur í 1. umferð - Þetta var erfiður leikur maður
Sigurjón Rúnars: Tíu mínútna kafli sem við slökktum á okkur
Lárus Orri: Markús Páll og Viktor Jóns ná vel saman
Markús Páll: Alltaf gaman að skora, af hverju ekki að fagna?
Rúnar Kristins: Hafði ekki hugmynd um að Markús Páll væri á leiðinni til Íslands
Jökull: Það var bara óþarfi
Hetja Þórsara gegn Val: Búinn að bíða helvíti lengi eftir því að koma inn á
Haddi: Mjög svekkjandi það sem ég heyri
Siggi um ummæli Hemma: Hann má alveg halda það
Halli Gumm: Sex mínútur eftir - Þurfum að geta haldið þetta út
Hemmi eftir tap gegn Þór: Stjórnuðum leiknum frá A til Ö
Sextán ára hetja KR - „Er það ekki sem fólkið vill?“
   sun 17. apríl 2022 07:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Gústi Gylfa: Gætum stillt upp liði bara með 2. flokks strákum
Ágúst Gylfason.
Ágúst Gylfason.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ágúst Gylfason, þjálfari Stjörnunnar, spjallaði við Fótbolta.net á kynningarfundi fyrir Bestu deildina í síðustu viku. Deildin hefst á morgun.

Stjarnan hefur reyndar ekki leik fyrr en á þriðjudaginn þegar liðið tekur á móti ÍA á heimavelli. Það verður fyrsti leikur Gústa með Stjörnuna í Bestu deildinni, en hann tók við liðinu eftir síðustu leiktíð.

„Staðan á leikmannahópnum er nokkuð góð. Við erum með stóran og breiðan hóp. Undirbúningstímabilið hefur gengið vel. Hópurinn er fjölbreyttur og við gætum stillt upp byrjunarliði í fyrsta leik bara með 2. flokks strákum sem hafa verið að æfa með okkur í allan vetur. Við gætum líka stillt upp byrjunarliði með leikmönnum sem eru 28 ára og eldri," sagði Gústi.

Hann var spurður að því hvort það yrði einhver hreyfing á hópnum áður en félagaskiptaglugginn lokar.

„Ég er ekki viss. Við erum með alla anga úti og erum að skoða heima og erlendis. Ef að rétti leikmaðurinn dettur inn, þá erum við tilbúnir að skoða það."

Stjarnan ætlar sér að vera í efri hlutanum þegar mótið skiptist upp eftir 22 leiki. „Við viljum vera í efri hlutanum en númer eitt, tvö og þrjú er að fá góða frammistöðu. Við viljum stilla hópnum vel saman og ná góðum úrslitum líka, að sjálfsögðu."
Slapp
banner
banner