Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 18. febrúar 2023 15:20
Aksentije Milisic
Martinelli fagnaði áður en hann kom boltanum í netið
Gabriel Martinelli.
Gabriel Martinelli.
Mynd: EPA

Arsenal vann dramatískan 2-4 útisigur á Aston Villa í dag en liðin mættust í Birmingham borg.


Staðan var 2-2 þangað til í uppbótartíma í Emiliano Martinez, fyrrverandi leikmaður Arsenal og núverandi markvörður Aston Villa, skoraði þá sjálfsmark og kom Arsenal í forystu á 93. mínútu leiksins.

Á lokamínútu uppbótartímanns fékk Aston Villa hornspyrnu og gerði Martinez sér ferð inn í teiginn í von um að bæta upp fyrir sjálfsmarkið.

Það endaði ekki vel fyrir heimamenn því Arsenal vann boltann og fór í sókn sem endaði með því að Martinelli, sem kom inn á sem varamaður, slapp einn í gegn og kom boltanum yfir marklínuna.

Martinelli tók upp á því að fagna markinu áður en hann skoraði eins og má sjá á myndinn hér fyrir neðan.

Ross Barkley vakti athygli fyrir eins atvik fyrir nokkrum árum síðan í treyju Everton þegar hann skoraði fyrir opnu marki á Goodison Park.


Athugasemdir
banner
banner
banner