Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
   lau 18. febrúar 2023 10:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Zidane vill snúa aftur
Mynd: EPA
Frakkinn Zinedine Zidane hefur opinberað áhuga sinn á að snúa aftur í þjálfun.

Þessi fimmtugi fyrrum landsliðsmaður Frakklands átti frábæran feril með Bordeaux, Juventus og síðast Real Madrid.

Hann hóf þjálfaraferil sinn sem aðstoðarþjálfari Carlo Ancelotti hjá Real Madrid tímabilið 2013/14 en varð svo aðalþjálfari varaliðs Real áður en hann tók við aðalliðinu 2016.

Hann stýrði aðalliðinu þangað til í maí 2018 þegar hann hætti þar sem hann taldi liðið þurfa á breytingum að halda. Hann snéri svo aftur eftir erfiða tíma hjá félaginu aðeins ári síðar.

Hann hefur síðan ekkert þjálfarð frá 2021 þegar hann hætti í annað sinn hjá félaginu.


Athugasemdir
banner
banner
banner