Belgi orðaður við Man Utd - Óskalisti Alonso ef hann tekur við Liverpool - Juventus veitir Arsenal samkeppni um Goretzka
Jökull: Sumt var full harkalegt
Adolf Daði: Ber miklar tilfinningar til Stjörnunnar
Jói Kalli: Skiptir máli þegar deildin byrjar
Arnar: Þurfum að taka doktorsprófið í að verða alvöru lið
Siggi Höskulds: Megum ekki vera svona barnalegir í sumar
Gummi Tyrfings: Við slökktum í þeim frá fyrstu mínútu
Allur pakkinn dró Djuric norður - „KA er stórveldið á Akureyri"
Óskar Hrafn: Forréttindi að þjálfa þessa tvo ungu menn
Jökull: Eitthvað sem enginn hjá okkur sættir sig við
Leandro: Þegar maður stendur sig vel á Íslandi skapast ýmis tækifæri
Þrenna í fyrsta leik - „Þetta er það sem okkur hefur vantað"
„Töluvert síðan að hópurinn var klár en hann var ekki að spila leikinn í dag"
Siggi Höskulds: Eins og að vera mættur á Pollamótið aftur
Hemmi Hreiðars: Ekki nálægt því að vera þannig
Erfitt að fá mínútur hjá Víkingi - „Vonandi get ég haldið þessu áfram“
Nýliðinn ósáttur þrátt fyrir stóra sviðið: „Við hefðum getað gert aðeins betur“
Alexandra: „Leyfðum þeim að krossa full auðveldlega"
Stigalausar og markalausar - „Auðvitað dreymir mann alltaf um eitthvað“
Fyrirliðinn sér bjarta framtíð: „Hún er á svipuðum aldri og ég þegar ég kom fyrst inn“
Fyrrum leikmaður ÍBV og landsliðsmarkvörður Englands um leikinn
banner
   mið 18. mars 2026 22:17
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson
Adolf Daði: Ber miklar tilfinningar til Stjörnunnar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Mér fannst við byrja heilt yfir frekar ferskt. Vorum grimmir og vorum að pressa vel. Þetta var eins og blika leikurinn svolítið, við vorum að skapa okkur góðar stöður en náðum ekki að setja hann í netið" sagði Adolf Daði Birgisson leikmaður FH eftir úrslitaleik gegn Stjörnunni í Þungavigtarbikarinum.


Lestu um leikinn: Stjarnan 2 -  0 FH

Hvernig líður þér eftir félagaskiptin?

„Mjög vel, ég ber miklar tilfinningar fyrir Stjörnunni, nánast uppalinn hérna, er Árnesingur. Búin að vera í Stjörnunni lengi, bara tilfinningar en gott að skipta um umhverfi."

Hefur nýtt umhverfi góð áhrif á þig?

„Já vonandi, það kemur í ljós. Það er undir mér komið að sanna mig og sýna hvað ég get. Vonandi gengur vel."

 Voru tækifærin of fá hjá Stjörnunni, finnst þér þig fá fleiri tækifæri hjá FH?

„Ég veit það ekki alveg það kemur bara í ljós, hvort að Jói velji mig í liðið eða ekki, ég ætla að gera mitt besta til að hjálpa liðinu og reyna að ná árangri persónulega og liðinu auðvitað líka."

Hvernig líður þér með Jóa Kalla, projectið og stjórnina?

„Þetta er búið að vera geggjað, ákefðin og það sem þeir eru að leggja inn í þetta. Ef við strákarnir leggjum sömu metnað og Ben og allir þessir gæjar eru að gera, Jói og Árni þá held ég að við getum rosalega langt."

Þú hefur þá bilandi trú á þessu liði?

„Já, alveg klárlega, hundrað prósent. Standa saman og gera þetta eins og menn. Ég held að, komnir í svolítið svona eitthvað allir á móti okkur núna, en bara áfram gakk."



Athugasemdir
banner
banner