Man Utd hefur áhuga á miðjumanni Bournemouth - Emery gæti yfirgefið Aston Villa - Klopp er ekki í viðræðum við Real Madrid.
Nýliðinn ósáttur þrátt fyrir stóra sviðið: „Við hefðum getað gert aðeins betur“
Alexandra: „Leyfðum þeim að krossa full auðveldlega"
Stigalausar og markalausar - „Auðvitað dreymir mann alltaf um eitthvað“
Fyrirliðinn sér bjarta framtíð: „Hún er á svipuðum aldri og ég þegar ég kom fyrst inn“
Fyrrum leikmaður ÍBV og landsliðsmarkvörður Englands um leikinn
Vilja Fanneyju og Guðrúnu með á eyðieyjuna
Glódís fyrir leikinn gegn Englandi: „Mætum með kassann úti“
Karólína Lea: Þurfum að passa vinkonu mína, hún er heit
Steini: Þurfum að gæta Russo vel inn í boxi
Diljá Ýr: Tek mínu hlutverki og reyni að gera það sem best
Sædís Rún: Auðvitað langar manni að spila á hærra leveli
María um fyrsta landsleikinn: Sérstaklega gaman að fá að spila á móti heimsmeisturunum
Cecilía Rán: Fannst við standa okkur ótrúlega vel
Óvænt í byrjunarliði Íslands - „Svo mikill heiður"
Steini Halldórs: Samkvæmt reglum á að stoppa leikinn
Jói Bjarna: Auðvitað finnst mér þetta erfitt og skrítið
Glódís Perla: Ef við viljum vera áfram í hæsta gæðaflokki þá verðum við að setja fjármagn í þetta
Guðrún: Komið alveg hálft ár síðan við hittumst síðast
Steini landsliðsþjálfari: Trú og hugrekki gegn heimsmeisturunum
Hlín Eiríks: Við leikmenn hefðum viljað hafa verkefni í síðasta glugga
   fim 18. apríl 2013 21:39
Elvar Geir Magnússon
Maggi Gylfa: Maggi Lú verið frábær í miðverðinum
Ítrekar að Björgólfur sé ekki á förum
Magnús Gylfason var sáttur með sína menn enda Valsliðið mun betra en andstæðingar sínir í kvöld.
Magnús Gylfason var sáttur með sína menn enda Valsliðið mun betra en andstæðingar sínir í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Valsmenn eru komnir í undanúrslit Lengjubikarsins eftir sannfærandi sigur gegn Fylki í 8-liða úrslitum í kvöld. Leikurinn endaði 2-0.

Lestu um leikinn: Valur 2 -  0 Fylkir

„Ég var mjög ánægður með mína menn. Við vorum mjög sannfærandi og gáfum fá færi á okkur og vorum sífellt ógnandi. Menn héldu skipulaginu," sagði Magnús Gylfason, þjálfari Vals.

Magnús Már Lúðvíksson hefur verið að spila í miðverðinum í síðustu leikjum en hann er vanur því að leika sem bakvörður. Verður Maggi Lú notaður sem miðvörður í sumar?

„Það verður að koma í ljós. Hann hefur verið að standa sig frábærlega í þessari stöðu. Ég var mjög sáttur við hann í dag. Nesta á í meiðslum og Jónas hefur verið að standa sig vel í hægri bakverðinum. Við verðum bara að sjá til."

Phil Bannister, enskur sóknarmaður, æfir með Val þessa dagana.

„Hann kom á mánudaginn og hefur æft með okkur og spilað einn æfingaleik. Þetta á eftir að koma í ljós."

Kjaftasögur hafa verið í gangi um að Björgólfur Takefusa sé á förum frá Val. Hann var á bekknum nánast allan leikinn í dag.

„Það er engin tenging þar á milli. Björgólfur er ekki á förum. Bjöggi var mjög góður í síðasta leik. Það er bara þétt leikið. Kolbeinn (Kárason) hefur verið að standa sig frábærlega líka, Ég var ánægður með liðið mitt í dag. Bjöggi spilaði lítið í dag en vonandi meira á mánudaginn."

Viðtalið við Magnús Gylfason má sjá í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner