Liverpool gerir lokatilboð í Wirtz - Real Madrid reynir að stela Zubimendi - Grealish til Everton?
Leiðin úr Lengjunni - ÍR á toppinn og ekkert gengur upp í Árbænum
Útvarpsþátturinn - Sigur á Hampden, Besta liðið og Gunnar Heiðar
Turnar Segja Sögur - Írland frá Jackie Charlton til Heimis Hallgríms
Uppbótartíminn - Þurfum að vinna leikina á EM
Leiðin úr Lengjunni - Leiknismenn rifu í gikkinn og afgerandi úrslit
Innkastið - Umdeild atvik og Íslandsmeistararnir vakna
Neðri deildir lengst uppi!
Tveggja Turna Tal - Þorkell Máni Pétursson
Freysi á heimavelli - Hvernig er líf íslenska þjálfarans í Bergen?
Útvarpsþátturinn - Boltinn, Brann og bestu barirnir
Innkastið - Bitlausir Blikar og galopnir KR-ingar
Grasrótin - 4. umferð, Baldvin Borgars í mánaðarfrí
Hugarburðarbolti Uppgjörið í Enska !
Sveindís fer yfir ákvörðunina óvæntu - Valdi borg englanna
Hugarburðarbolti GW 38 Sturlaður lokasprettur í enska!
Leiðin úr Lengjunni - Hamingja á Húsavík og fúlir Fylkismenn
Uppbótartíminn - Nýtt lið á toppnum og mikilvægir landsleikir
Enski boltinn - Rándýr dómaramistök og bikar á loft á Anfield
Tveggja Turna Tal - Óskar Smári Haraldsson
Innkastið - Blikar lúta í gras og Davíð Smári finnur lausnir
   mán 21. mars 2016 15:30
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net
Gulli Gull: Vonaði að Stjáni Finnboga myndi spila illa
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Reynsluboltinn Gunnleifur Gunnleifsson er í íslenska landsliðshópnum sem mættur er til Danmerkur að undirbúa sig undir vináttuleiki gegn Dönum og Grikkjum.

Fjórir markverðir eru í hópnum og er Gunnleifur í baráttu við Ögmund Kristinsson og Ingvar Jónsson um að fara út ásamt Hannesi Þór Halldórssyni

„Ég hef alveg trú á minni getu. Tímabilið í fyrra var sennilega mitt besta og ég treysti mér alveg til að spila fyrir íslenska landsliðið. Ég vil bara komast á mínum forsendum. Þegar ég var á bekknum hjá Stjána Finnboga hjá KR fyrir tæpum 20 árum var maður með krosslagða fingur og vonaði að hann myndi klikka. Ég er ekki þannig í dag. Ég hjálpa strákunum eins og ég get," sagði Gunnleifur í viðtali í útvarpsþættinum Fótbolti.net.

Gunnleifur leikur með Breiðabliki og var valinn markvörður ársins í Pepsi-deildinni í fyrra en hann átti þá sitt besta tímabil á ferlinum.

„Það kom svakalegt búst með Arnari og Kristó þegar þeir tóku við. Ég lyftist með og þetta small saman. Varnarleikur liðsins í heild var mjög góður og það hjálpaði mikið til."

Viðtalið við Gunnleif má heyra í heild sinni í spilaranum hér að ofan en þar ræðir Gunnleifur meðal annars um komandi tímabil hjá Blikum og stöðu mála hjá Manchester City, hans liði í enska boltanum.
Athugasemdir
banner
banner