Liverpool og Barcelona hafa áhuga á Alvarez - Bilic gæti tekið við West Ham - Man Utd ætlar að fá inn markvörð næsta sumar
Gagnrýnin réttmæt - „Auðvitað á hún rétt á sér þegar við eigum að vera í þessari toppbaráttu“
Túfa: Leikurinn sýndi hvert íslenska deildin er komin í dag
Dóri Árna: Sé ekki betur en að Hólmar hoppi upp og slái í boltann - Vona að ég hafi rangt fyrir mér
Gummi Kri um Jökul: Hann gerir töluvert meira gagn þar heldur en upp í stúku
Heimir: Ef það er einhver sem ég vil að fái svona færi þá er það Bjarni, fyrir utan Björn Daníel
Markmiðið sett eftir Bröndby leikinn: „Búnir að standast prófið hingað til“
Þórarinn Ingi: Ég er bara að vinna hérna og hjálpa til eins og ég get
Segir Sigurð besta dómara landsins - „Búinn að fá alveg nóg og lét gamminn geisa“
Gylfi: Tímabært fyrir dómarana að fá VAR hjálp
Hallgrímur Jónasson: Ég fór á háu nóturnar
Óskar Hrafn: Við höfum örlögin í okkar höndum
Láki: Stundum þarf maður að vera pínu bófi
Birnir Snær: Okkur fjölskyldunni líður ótrúlega vel hérna
Alex Freyr: Þurfum að loka svona leikjum 6 til 7-0
Maggi með ákall til stuðningsmanna - „Þurfum að fylla völlinn og búa til alvöru stemningu"
Stefan Ljubicic: Féll allt á einhvern hátt fyrir okkur
Venni: Þetta er bara leikaraskapur og hann kemst upp með það
Ívar Örn: Manni finnst maður oft vera full gamall
Hemmi Hreiðars: Stórkostlegt að vera komnir þetta langt á kornungu liði
Haraldur Freyr: Hjálpar okkur helling að við vorum í þessum leik í fyrra
banner
   mið 21. mars 2018 21:30
Elvar Geir Magnússon
Santa Clara
Hörður Björgvin: Auðvitað kemur upp hræðsla varðandi HM
Icelandair
Hörður lék sér með amerískan fótbolta á æfingunni í dag.
Hörður lék sér með amerískan fótbolta á æfingunni í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Betur fer en á horfðist þegar Hörður Björgvin Magnússon meiddist á hné í leik með Bristol City um síðustu helgi. Hörður er mættur til móts við landsliðið hér í Bandaríkjunum.

„Þetta leit ekki vel út þegar það gerðist. Eftir að hafa farið í skanna og rætt við sérfræðing leit þetta strax betur út. Það er rosalega gott að vera kominn hingað í meðferð hjá okkar sjúkrateymi. Það er líka gott að geta talað íslensku aðeins," segir Hörður.

Ísland mætir Mexíkó á föstudagskvöld og leikur svo gegn Perú í næstu viku. Hörður æfði ekki í dag en mun hann spila þessa vináttuleiki?

„Ég hreinlega veit það ekki. Það er undir þjálfurunum og sjúkrateyminu hvað planið er. Við erum ekkert að flýta okkur neitt, við viljum vera heilir fyrir sumarið. Ég kom hingað í gær en vonast til að vera með á æfingu á næstu dögum."

Þegar Hörður meiddist um helgina hugsaði hann strax út í HM.

„Auðvitað kemur smá hræðsla varðandi HM, þetta er það stærsta sem maður mun upplifa. Það var gott að fá að góðar upplýsingar og fékk að vita að meiðslin væru ekki alvarleg."

Sjáðu viðtalið í heild í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir