Jesus gæti farið frá Arsenal - Möguleg stjóraskipti hjá Man Utd og Bayern - Dortmund vill halda Sancho
banner
   lau 25. febrúar 2023 19:00
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu öll þrjú mörk Ronaldo - Kominn með 62 þrennur á ferlinum
Mynd: EPA
Cristiano Ronaldo skoraði öll þrjú mörk Al-Nassr í 3-0 sigri á Damac í Sádi-Arabíu í dag en hann er nú kominn með 62 þrennur á ferli sínum.

Ronaldo skoraði fyrsta markið úr vítaspyrnu áður en hann bætti við öðru með föstu skoti rétt fyrir utan teig.

Hann fullkomnaði þrennuna undir lok síðari hálfleiks eftir stórgóða skyndisókn.

Ronaldo er með átta mörk í fimm leikjum í deildinni en öll mörk hans í dag má sjá hér fyrir neðan.

Sjáðu fyrsta mark Ronaldo
Sjáðu annað mark Ronaldo
Sjáðu þriðja mark Ronaldo
Athugasemdir
banner
banner
banner