KR take á móti HK á Meistaravöllum núna í kvöld þegar 6.umferð Pepsi Max deildar karla kláraðist.
KR komust yfir í fyrri hálfleik með marki frá Atla Sigurjónssyni en HK jafnaði seint í leiknum með marki frá Stefan Alexander Ljubicic.
„Vonbrigði og svekkelsi. Við hefðum viljað vinna þennan leik bæði fyrirfram og bara hvernig við spiluðum í dag." Sagði Sigurvin Ólafsson aðstoðarþjálfari KR eftir leikinn í kvöld.

Lestu um leikinn: KR 1 - 1 HK
„Tökum stigið, sú klisja, virðum punktinn og allt það en ég og við allir vildum fá þrjú stig þegar við gengum inn á völlinn í upphafi leiks."
KR voru oft á tíðum að komast í ákjósanleg færi en vantaði síðan bara að reka smiðshöggið á sóknirnar.
„Já það er í raun kannski það sem fellir okkur í dag er að við hefðum getað aflífað þennan leik á ýmsum tímapunktum og á sama tíma og við erum að komast í þessar góðu stöður þá erum við að halda þeim vel frá okkar marki."
„Ég er auðvitað hlutdrægur og allt það en mér fannst frammistaðan í dag nógu góð til þess að ná í þrjú stig og mér fannst við yfir í flestum stöðum á vellinum eiginlega allan tímann þannig ég er mjög svekktur yfir því að fá bara eitt stig."
Nánar er rætt við Sigurvin Ólafsson í spilaranum hér fyrir ofan
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir