„Þetta er bara ólýsanleg tilfinning sem maður upplifir ekki oft yfir ævina,“ sagði Sandra María Jessen, fyrirliði Þórs/KA eftir að þær höfðu tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn með sigri á FH í lokaumferð Pepsi-deildar kvenna í dag.
Lestu um leikinn: Þór/KA 2 - 0 FH
„Markmiðinu er náð, við ætluðum að klára deildina sem sigurvegarar og gerðum það í dag þannig að við erum allar sáttar.“
„Við héldum bara rónni og vissum bakvið eyrað að markið lægi í loftinu. Við héldum boltanum vel, náðum mikið af crossum inn í teig og það hlaut að koma að því að boltinn myndi detta inn.“
Það var Sandra sem skoraði markið sem braut ísinn fyrir Þór/KA með fínu marki eftir fyrirgjöf Önnu Rakelar Pétursdóttur.
„Þetta var rosalega gott moment og þetta er augnablik sem maður gleymir seint. Ég held að það að brjóta ísinn hafi verið rosalega gott fyrir okkur, það svona létti á liðinu og þegar við skoruðum fyrra markið þá fórum við að spila miklu betur og náum strax að bæta við öðru.“
Athugasemdir























