Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 29. júlí 2018 19:18
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sölvi Geir með rifinn liðþófa - Ekki með næstu vikurnar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Varnarjaxlinn Sölvi Geir Ottesen verður ekki með Víkingi næstu vikurnar. Hann er með rifinn liðþófa. Frá þessu greindi Logi Ólafsson, þjálfari Víkings, á Stöð 2 Sport fyrir leik Víkings og Stjörnunnar sem er á dagskrá í kvöld.

Þetta er mikið áfall fyrir Víking þar sem Sölvi er lykilmaður í varnarleiknum.

„Sölvi sagði að þetta hafi tekið tíu daga síðast þegar hann lenti í svona meiðslum en þá var hann nú töluvert yngri. Við vonum að þetta taki sem stystan tíma," sagði Logi.

Sölvi Geir fór meiddur af velli á 10. mínútu gegn Val í síðustu umferð sem leikinn var fyrir viku síðan. Sá leikur tapaðist 4-1.

Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu frá leik Víkings og Stjörnunnar.

Sjá einnig:
Byrjunarlið Víkings og Stjörnunnar: Castillion byrjar - Sölvi ekki með
Athugasemdir
banner
banner