Kane gæti tekið við af Lewandowski - Amorim fær pening - Camavinga til Englands?
banner
   sun 21. september 2025 05:55
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ísland í dag - Besta deildin og Lengjudeildarumspilið
Víkingur er á toppnum
Víkingur er á toppnum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Búið er að skipta Bestu deildinni í tvennt. ÍA lagði Vestra í fyrsta leiknum i neðri hlutanum í gær.

KR er komið í fallsæti eftir sigur ÍA en liðið getur komist aftur í öruggt sæti með sigri á KA á Akureyri í dag. KA getur komið sér í þægilega stöðu með sigri. Afturelding þarf nauðsynlega á sigri að halda í nýliðaslagnum gegn ÍBV í Eyjum.

Víkingur fær Fram í heimsókn og Stjarnan fær FH í heimsókn í efri hlutanum. Víkingur er með tveggja stiga forystu á toppnum.

Seinni leikirnir í undanúrslitum í umspili Lengjudeildarinnar um sæti í Bestu deild fara fram í dag. Þróttur fær HK í heimsókn en HK er marki yfir eftir dramatískan sigur í Kórnum. Njarðvík fær Keflavík í heimsókn. Njarðvík er marki yfir en liðið er án Oumar Diouck sem fékk viljandi rautt spjald í fyrri leiknum til að ná úrslitaleiknum, fari Njarðvíkingar þangað.

sunnudagur 21. september

Besta-deild karla - Efri hluti
19:15 Stjarnan-FH (Samsungvöllurinn)
19:15 Víkingur R.-Fram (Víkingsvöllur)

Besta-deild karla - Neðri hluti
16:00 ÍBV-Afturelding (Hásteinsvöllur)
16:15 KA-KR (Greifavöllurinn)

Lengjudeild karla - Umspil
14:00 Þróttur R.-HK (3-4) (AVIS völlurinn)
14:00 Njarðvík-Keflavík (2-1) (JBÓ völlurinn)
Besta-deild karla - Efri hluti
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Víkingur R. 22 12 6 4 47 - 27 +20 42
2.    Valur 22 12 4 6 53 - 35 +18 40
3.    Stjarnan 22 12 4 6 43 - 35 +8 40
4.    Breiðablik 22 9 7 6 37 - 35 +2 34
5.    FH 22 8 6 8 41 - 35 +6 30
6.    Fram 22 8 5 9 32 - 31 +1 29
Besta-deild karla - Neðri hluti
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    ÍBV 22 8 5 9 24 - 28 -4 29
2.    KA 22 8 5 9 29 - 39 -10 29
3.    Vestri 23 8 3 12 23 - 32 -9 27
4.    ÍA 23 8 1 14 30 - 43 -13 25
5.    KR 22 6 6 10 42 - 51 -9 24
6.    Afturelding 22 5 6 11 29 - 39 -10 21
Athugasemdir
banner