,,Þetta var í okkar höndum þetta blessaða Íslandsmót með því að vinna þá fjóra leiki sem eftir voru," sagði Tryggvi Guðmundsson leikmaður ÍBV í samtali við Fótbolta.net eftir 3-2 tap gegn Stjörnunni í dag.
Lestu um leikinn: Stjarnan 3 - 2 ÍBV
Stjarnan fékk vítaspyrnu í stöðunni 2-1 og skoruðu úr henni og við dóminn voru Eyjamenn ekki sáttir við.
,,Við fyrstu sýn sýndist mér þetta bara vera árekstur og ef að svona fer fram út á miðjum velli er mönnum sagt að standa upp og halda áfram og geta bara séð hvert boltinn berst."
Tryggvi jafnaði markamet Inga Björns Albertssonar og hefur nú skorað 126 mörk í efstu deild.
,,Þú verður að trú mér, þetta skiptir mig ekki nokkru máli. Það væri gaman að gera þetta á heimavelli ég veit að TG klúbburinn hefur beðið eftir því að ég skori einhver mörk á heimavelli, það hefur eitthvað farið lítið fyrir því. Þeir voru með einhver flettispjöld og ég er búinn að skemma allt showið í kringum það."
Eyjamenn töpuðu þarna þremur mikilvægum stigum í toppbarátunni en geta huggað sig við það að KR og FH gerðu jafntefli.
,,Það gerir þetta enn verra að við skildum ekki hafa gert betur hérna en það er bullandi fjör í þessu ennþá."
Nánar er rætt við Tryggva í sjónvarpinu hér að ofan.






















