Wilson óvænt að semja aftur - Man Utd bætir öðrum miðjumanni Forest á óskalistann - City að klára kaup - Real fylgdist með Tonali
Nýliðinn ósáttur þrátt fyrir stóra sviðið: „Við hefðum getað gert aðeins betur“
Alexandra: „Leyfðum þeim að krossa full auðveldlega"
Stigalausar og markalausar - „Auðvitað dreymir mann alltaf um eitthvað“
Fyrirliðinn sér bjarta framtíð: „Hún er á svipuðum aldri og ég þegar ég kom fyrst inn“
Fyrrum leikmaður ÍBV og landsliðsmarkvörður Englands um leikinn
Vilja Fanneyju og Guðrúnu með á eyðieyjuna
Glódís fyrir leikinn gegn Englandi: „Mætum með kassann úti“
Karólína Lea: Þurfum að passa vinkonu mína, hún er heit
Steini: Þurfum að gæta Russo vel inn í boxi
Diljá Ýr: Tek mínu hlutverki og reyni að gera það sem best
Sædís Rún: Auðvitað langar manni að spila á hærra leveli
María um fyrsta landsleikinn: Sérstaklega gaman að fá að spila á móti heimsmeisturunum
Cecilía Rán: Fannst við standa okkur ótrúlega vel
Óvænt í byrjunarliði Íslands - „Svo mikill heiður"
Steini Halldórs: Samkvæmt reglum á að stoppa leikinn
Jói Bjarna: Auðvitað finnst mér þetta erfitt og skrítið
Glódís Perla: Ef við viljum vera áfram í hæsta gæðaflokki þá verðum við að setja fjármagn í þetta
Guðrún: Komið alveg hálft ár síðan við hittumst síðast
Steini landsliðsþjálfari: Trú og hugrekki gegn heimsmeisturunum
Hlín Eiríks: Við leikmenn hefðum viljað hafa verkefni í síðasta glugga
   fim 09. ágúst 2012 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Palli Gísla um eigin markmann: Þetta er klárt rautt
Páll Viðar Gíslason.
Páll Viðar Gíslason.
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
,,Þetta er klárt rautt. Ef hann dæmir hendi á hann þá held ég að þetta sé í reglunum, að ræna upplögðu marktækifæri og aftasti maður, klárlega," sagði Páll Viðar Gíslason þjálfari Þórs eftir 1-2 sigur á Hetti í 1. deildinni í kvöld og vísaði í að hans eigin markvörður, Stdjan Rajkovic hefði átt að fá reisupassann seint í leiknum en hann varði svo vítaspyrnu frá Hetti nokkrum mínútum síðar.



,,Það er súrrealískt að þetta hafi endað svona því dómari leiksins byrjaði leikinn á að leyfa mjög gróf brot. Maður hugsaði með sér hvað verðskuldaði gult spjald eftir þetta ef þetta er ekki gult. Þetta endurspeglaði að hann átti ekki sinn besta leik í dag og gerði þessi augljósu mistök. Fyrst hann dæmir aukaspyrnu og hendi þá held ég að það eigi að reka hann útaf."

Rajkovic var óvænt í byrjunarliðniu því Joshua Wicks sem hafði slegið hann út á dögunum meiddist í upphitun.

,,Við erum með tvo mjög góða markmenn. Það er engin launung og það er hörð samkeppni að vera í marki. Það kom ekki bakslag í okkur þó við höfum þurft að skipta með stuttum fyrirvara. Þrátt fyrir að ég vil nú meina að hann hefði getað komið í veg fyrir eitthvað af þeim upphlaupum sem þeir fengu nálægt boxinu, þá held ég að Rajkovic sé þá maður leiksins að hanga inná ósanngjarnt samkvæmt einhverjum KSÍ reglum og er svo hetja leiksins. Svona er þetta bara."

Nánar er rætt við hann í sjónvarpinu að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner